Innskráning ritstjóra |
Ferskeytt (ferskeytla)
Metra kordo:
4l:[o]-x[x]:4,3,4,3:aBaB
Metrika grafikaĵo:
Priscribo:
Ferskeytt eða ferskeytla er ferhendur háttur og er fjórar kveður í frumlínum en þrjár í síðlínum. Frumlínur eru stýfðar en síðlínur óstýfðar. Óbreyttur er hátturinn með víxlrími og án innríms. - Ferskeyttur háttur er jafnan talinn elstur rímnahátta og undir honum er kveðin Ólafs ríma Haraldssonar sem ort mun laust eftir miðja 14. öld. Höfundur hennar er Einar Gilsson lögmaður. Er ríman varðveitt í Flateyjarbók sem rituð er um 1390. Í aldanna rás hefur ferskeyttur háttur verið algengastur rímnahátta og lausavísna og meira hefur verið kveðið undir honum á Íslandi en nokkrum öðrum bragarhætti.
Ekzemplo
Sólin skín á sundin blá,
senn er mál að rísa. Við mér blasa víð og há veldi morgundísa. Guðfinna Jónsdóttir frá Teigi Poemo sub ĉi tiu metro |